Hallur

Archive for the ‘Sveinki og Hallur’ Category

Höldum áfram ljóðagerð

In Sveinki og Hallur on júlí 19, 2009 at 09:02

Hallur segir

Áfram birtum okkar ljóð
yrkjum stöðugt meira
lipran síðan andans óð
alþjóð látum heyra

Gáta (hver er ég?)

In Sveinki og Hallur on júlí 16, 2009 at 00:51

Sveinki segir

Ég gekk inn í ríkið og keypti mér kassa
þar afgreiddi mig hún Lína
ég sá að þetta myndi passa
þrjá fyrir mig þrjá fyrir syni mína

Hallur svarar

Ekkert svar mér andinn gaf,
ei samt hættum.
Finnst mér eins og fýr sé af
Framnesættum.

Sveinki svarar

Framnes byggir enginn einn,
býr þar fjöldi manna.
Hallur,bogga,Baldur,Sveinn,
kýrinn rauð og Anna.

Hallur svarar

Syni á hann þreytta þrjá
það er enginn vafi
lausn hér allir núna ná:
Nafni minn og afi.

Systkyni

In Sveinki og Hallur on júlí 14, 2009 at 08:39

Sveinki segir

Magga,unnur,auður,kaldi
góðar,betri,bestar
sveinki,sævar,valdi
eru sunnar,norðar,vestar

Hallur svarar

Ég á bara bróðir einn
blítt hann látnir vilja,
gerir kistur sveittur Sveinn.
Svo er það hún Lilja.

Skíðaferð!

In Sveinki og Hallur on júlí 13, 2009 at 01:29

Hallur segir

Heill og varkár oftast ert,
allra prýði,
fótamein samt geta gert
gönguskíði.

Sveinki svarar

Þó að jeg á skíðum falli
þá fjekk ég góða sýn
er ég les ljóð frá halli
sem ort eru til mín

Brúðkaupsveisla

In Sveinki og Hallur on júlí 12, 2009 at 08:43

Hallur segir

Vart þú boðar veislu senn
og vísu kort í setur,
því brúðarvöndinn ekki enn
Inga klófest getur.

Sveinki svarar

Brúðrvöndur bíða má
hvað sem síðar verður?
þær sem þessum vendi ná
lóa,inga gerður

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.