Fimmta ferð 3 l
Rúnar á hér fagurt fjós
fremstur er hann rekka,
fyrir mjólk hann fær nú hrós
sem finnst mér góð að drekka.
Fimmta ferð 3 l
Rúnar á hér fagurt fjós
fremstur er hann rekka,
fyrir mjólk hann fær nú hrós
sem finnst mér góð að drekka.
Fjórða ferð 3,5 l
Þó ég stundum gleðji gest
og gæðadrykk þá noti,
ísköld mjólkin bragðast best
beint frá Vallakoti.
Þriðja ferð 4,5 l
Æ í tankinn aftur fer
er mig sækir þorsti
háður mjólk ég orðin er
með alla þessa kosti.
Önnur ferð 3 l
Í Vallakoti veit ég er
vænt allt fólk,
ljúf þau bæði leyfa mér
að lepja mjólk.
Bækluð hné og biluð sjón,
brjóstkassinn er fallinn,
bráðum verð ég fertugt flón,
fúinn spítukallinn.
Hallur segir
Áfram birtum okkar ljóð
yrkjum stöðugt meira
lipran síðan andans óð
alþjóð látum heyra
Sveinki segir
Ég gekk inn í ríkið og keypti mér kassa
þar afgreiddi mig hún Lína
ég sá að þetta myndi passa
þrjá fyrir mig þrjá fyrir syni mína
Hallur svarar
Ekkert svar mér andinn gaf,
ei samt hættum.
Finnst mér eins og fýr sé af
Framnesættum.
Sveinki svarar
Framnes byggir enginn einn,
býr þar fjöldi manna.
Hallur,bogga,Baldur,Sveinn,
kýrinn rauð og Anna.
Hallur svarar
Syni á hann þreytta þrjá
það er enginn vafi
lausn hér allir núna ná:
Nafni minn og afi.
Hér mun koma eitt ljóð fyrir hverja mjólkurferð í Vallakot
Fyrsta ferð
Hanna Magga mjólkar vel,
mjög er gott að smakka.
Konu fylgd í fjós ég tel
fyrir ætt’ að þakka.
Sveinki segir
Magga,unnur,auður,kaldi
góðar,betri,bestar
sveinki,sævar,valdi
eru sunnar,norðar,vestar
Hallur svarar
Ég á bara bróðir einn
blítt hann látnir vilja,
gerir kistur sveittur Sveinn.
Svo er það hún Lilja.
Hallur segir
Heill og varkár oftast ert,
allra prýði,
fótamein samt geta gert
gönguskíði.
Sveinki svarar
Þó að jeg á skíðum falli
þá fjekk ég góða sýn
er ég les ljóð frá halli
sem ort eru til mín